Djöfullinn = Hr. Macintosh
18.03.2005 12:25:59 / danni

Meistarinn skiptir yfir á kantinn

Meistarinn hefur alltaf verið þéttur á kantinum og nú hefur hann ákveðið að fara að ráði bleggsins, líbunar og naomið og skipt um kant. Hann hefur því opnað gömlu heimasíðuna sína aftur-Gleymið ekki að uppfæra. http://www.lestir.blogspot.com.

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.03.2005 16:29:03 / danni

Leiðindi

Svona túlkaði Ólafur skrifstofu meistarans þennan miðvikudaginn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2005 01:22:29 / danni

Tekið úr bók frjálshyggjufélagsins

"Það er ekki papparazi gaurunum að kenna að Díana dó. Hún hefði getað afsalað sér konungsdómnum, hún fékk valið að vera drottning eða að vera ekki drottning. "

"Díana réð því sjálf hvort hún færi upp í bílinn. Hún vissi hverjar hætturnar urðu. Hún vissi að papparazíarnir myndu elta hana. Hún hafði valið. Hún valdi rangt"

Meistarinn meinar ekkert illt-Rangt skal vera málað sem rangt.


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.03.2005 12:15:20 / danni

Vísindahornið

Hér er grein sem lýsir áhrifum delta9-tetrahydrocannabinol sem er eitt af virku efnunum í marijuana á æxli.
Góður lestur í alla staði.

Meistarinn


» 100 hafa sagt sína skoðun

04.03.2005 16:16:19 / danni

Föstudagshugleiðingar

Meistarinn er ósáttur við Michael Jackson málið. Face it, maðurinn er snarklikkaður og augljóslega sængaði með börnum. Þetta er ekki nein spurning lengur um einhvern sem vill fá pening af honum. Meistarinn finnst fáránlegt að Mikjáll fá þessi púðaréttarhöld. Haldiði að þetta hafi verið svona t.d. hjá manninum sem var tekinn á Patreksfirði nú fyrir stuttu. Var öllum kviðdóminum boðið inn í herbergi hans og skoðað hvort þar væri nokkuð klámblöð að finna?
En kannski er ekki neitt við Mikjáll svo að sakast, maðurinn er  bara snargeðveikur og þarfnast lækninga. Eða kannski þarf hann bara að þroskast?
Annað sem ískrar í eyrum meistarans er þessi "áróður" um mannréttindabrot á reykingafólki. Eins og áður hefur verið bent á þá deyr einn vinnumaður á pöbb á viku í Bretlandi.  Lesendur síðunnar brugðust snöggt við með rökum og emailum.
Ein þeirra voru þau að sá sem vinnur á pöbb ræður því sjálfur hvort hann vinni þarna eða ekki...eins og flugþjónn sem veit að flugvél getur hrapað en samt kýs hann að vinna í flugvél þrátt fyrir áhættuna. Þetta eru rök sem eru í anda frjálshyggjunnar...meistarinn er ekki sammála frjálshyggjunni í einu og öllu og sérstaklega efitr að hafa unnið með einum af hennar styrkustu stoðum á Íslandi.
Frjálshyggjufólk vil nota þessi rök, að fólk velur það sjálft, við allt sem gerist. Það finnst meisaranum rangt og oft eru dæmi um að svona hugsanaháttur virkar ekki.
Önnur rök sem emailuð voru til meistarans var að reykingafólk drepur engann heldur reykurinn sjálfur. Því ætti að reyna að finna upp eitthvað sem kæfir reykinn...þetta þótti meistaranum fyndin rök.
Annað sem kætir meistarann er að nú hafa foreldrar hans ákveðið að ferðast til Grænu eyjunnar. Ekkert verður skemmtilegra en að versla með mömmu og vera blindfullur á pöbbnum með pabba meistarans.

Meistarinn óskar öllum gleðilegrar helgar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2005 09:47:32 / danni

Dog vs. Cats

Hundar eru ekki kúl. Kettir eru kúl. Hunder eru ekki menn, ekki heldur kettir. Hundar eru lélegir. Kettir eru góðir.

Meistarinn finnst myndin  Cats & Dogs ekki raunsæ mynd þar sem kettir tapa stríðinu.  


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.02.2005 11:15:40 / danni

Tekið af heimasíðu Discovery.com

Tjékkið á Brainman. Þetta hefur meistarinn haldið leyndu í öll þessi ár. Nú eru vísindamenn að reyna að cracka hann...Meistarinn mun ekki bugast.


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.02.2005 11:09:10 / danni

Jörð-Mars

Meistarinn rakst á þetta á flakki sínu um veraldarvefinn. Þetta finnst meistaranum nokkuð sniðugt þar sem nú er að fæðast önnur "Jörð." Það vekur upp nokkuð margar spurningar. Þetta finnst meistaranum:
Eins og nú þá er að fæðast annar staður þar sem við getum búið. Allir vita um sprengjukenninguna, þannig að jörðin er alltaf að færast fjær og fjær sólinni, sem gerir jörðina meira og meira óbyggjandi. En hver segir að þetta hafi ekki gerst áður. Þrátt fyrir sannanir eins og að ekki sé búandi á öðrum plánetum þá þýðir það ekki að það hafi ekki verið búandi á þeim mörgum milljónum trilljónum árum áður.
Það sem vísindamenn eru að velta fyrir sér sem byrjun lífverana, þegar litlu dýrin skriðu á land, fyrst voru það skordýrin, dýr með harða skel sem gerði þeim ókleyft að stækka og dafna á landi. Síðan voru það "við" sem vorum ekki með þessa skel og með líkama sem gat stækkað og þróast. Well, eins og nú sé staðan þá er jafnvel eitthvað líf í höfum Mars. Það sem gerist næst er að við reynum að senda far þangað til að þróa lífið eða til að skoða. Við þetta verður þessi sprenging líkt og þegar að dýrin skriðu á land á jörðinni. Því munum við sjá þróun lífs á Mars áður en yfir líkur, líkt og gerðist fyrir jörðina fyrir mörgum hundruðum skrilljónum árum.
Því kemur þetta meistaranum ekkert á óvart að það sé líf á Mars. Að halda að það sé ekki líf á Mars er eins og að halda að persónan Guð hafi skapað okkur öll.

Meistarinn er vísindalega þenkjandi í gær eftir nærri 4 tíma áhorf á Discovery.


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.02.2005 12:08:30 / danni

Meistarinn sagði...

Fólk sem getur sett sig í spor annarra eru skoðanalausir djöflar.
Skoðun er alltaf skoðun og rifrildi er árekstrur mismunandi skoðana. Þannig hefur það verið og þannig mun það verða-Þar til allir verða skoðanalausir djöflar.
Skoðanamunur er góður hlutur, hann er líkt og vasaljós í helli því sanna. Leitin af hinu rétta byrjar í skoðanamun.

Meistarinn er sáttur við að Roy Carroll skuli vera í marki United.

» 97 hafa sagt sína skoðun

23.02.2005 10:53:56 / danni

Vel skrifuð grein

Líban benti meistaranum á þetta. Málefnið sem slíkt er ekki það sem um ræðir heldur er það þessi málfærsla sem maðurinn beitir. Flestir vita að ef óbeinar reykingar hafi aldrei verið fundið upp þá hefði algert reykingabann aldrei verið til umræðu. Og eins og meistarinn hefur bent á þá er helsta ástæða reykingabanns óbeinar reykingar. Það geta allir verið sammála því.
Í þessari grein þá ritar Guðmundur "Hvað með óbeinu reykingarnar og þá hættu sem þeim fylgir? Er það ekki óréttlátt að fólk þurfi að anda að sér skaðsömum reyk á veitingastöðum? Jú, það væri hægt að færa rök fyrir því ef einhver þvingun ætti sér stað."
Hér finnst meistaranum hann gera vel, með því að skrifa svona þá tekur hann mesta báráttuefni þessa reykingabanns, snýr það niður, hálstak og svæfir það. En auðvitað ætlar hann sér það.
Meistaranum er alveg slétt sama hvernig/hvort reykingabann verður, bara að fólk viti meira af því að óbeinar reykingar geti líka drepið.  (Þó það sé nú ekki algerlega sannað eins og þessi og þessi grein segja.)

En pæliði í því í Bretlandi þá deyr einn barþjónn, gengilbeina EÐA einhver annars starfsmaður á bar í hverri viku útaf óbeinum reykingum.

Meistarinn þolir ekki málefnalegar umræður frjálshyggjufélagsins, það er allt í lagi að vera á móti reglum en rólegur...


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.02.2005 18:28:53 / danni

Úr dagbók heimilsofbeldis

 
From something I was
to nothing I will be.
The same was with us
you and me.

Rainbows dont exist,
without a little rain.
So have a taste of my fist,
smell the hint of pain.

Dont leave me, I can change
if you do I will die.
Dont leave me, I can change
if you do I will die.

Now you left left me alone,
walked out of the door
I miss miss your moan
when I dragged you on the flooooorr

Dont leave me, I can change
if you do I will die.
Dont leave me, I can change
if you do I will die

Meistarinn var þreyttur...


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.02.2005 12:57:29 / danni

Símamissir

Open window boredome callin'
you out to rain of where the lies and failure
make you think. Without the italian
sleezy lobby guy I wouldnt have the pain, pain
of knowing I failed, failed my phone.

Somewhere  you are my good old one
who always listened and never judged.
Rest in peace my good son,
listening to a sleezy italian.

If just I had the chance to say farwell
farwell my friend, friend to die.

Sorg ríkti í hjarta meistarans.


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2005 11:18:28 / danni

Vöðvamassi

Eitthvað kannast meistarinn við þennan Bola...hefur hann ekki verið í matarboðum hjá tengdó...Góða helgi gott fólk!


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.02.2005 10:40:25 / danni

Írland-Portúgal

Þetta heyrðist á vellinum : Zinidine Kilbane!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2005 10:06:21 / danni

Búið og Gert

Meistarinn breytti slefinu sem leiðir til Óla hönk.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11